|
|
24.09.2006 21:28:03 / einarlogi
Nýtt Blogg
www.blog.central.is/einaroganna
skoðið endilega....
»
21.09.2006 18:17:23 / einarlogi
Jæja margt búið að gerast síðustu daga hjá okkur hérna í
stórborginni en við höfum verið að innrétta hjá okkur hérna á
fullu og má segja að íbúðin hjá okkur sé bara blaðsíða 200 í nýja
Ikea listanum, og eigum við bara að eftir að hengja upp myndir á
veggina og þá ætti þetta allt saman að verða klárt. En ég ætla svo
sem ekki að vera tala mikið um íbúðina hérna þar sem Anna er búin
að segja frá þessu flest öllu saman á sinni síðu. Svo höfum við
reyndar verið að spá í því að sjóða saman nýtt sameiginlegt þriggja
manna blogg héðan frá Emsdetten, en eina sem vantar er gott nafn á
bloggsíðuna og þá ætti þetta að vera klárt hjá okkur, allar
hugmyndir vel þegnar.
Svo lenti ég í því að þegar ég kom heim eftir æfingu á
þriðjudaginn þá tók Anna á móti mér með því að segja mér að það
væri kominn vírus í tölvuna mína, og ég fór að skoða málið og jú
ekki nema 10 stykki vírusar komnir og allt einhverjir svona ormar
eða hvað maður á að segja, alla vega vírusar og ég ekki sá besti á
tölvur og vissi lítið hvað ég ætti að gera og bað Önnu um að
auglýsa eftir einhverjum á msn hjá sér sem gæti hjálpað mér með
þessa vírusa og viti til þá koma Haukurinn til bjargar og reddaði
mér og leiðbeindi mér í gegnum þetta allt saman og nú eru vírusar á
bak og burt. Þakka ég Haukinum kærlega fyrir þetta og býð ég þér í
glas um jólin í staðinn 
En annars vorum við að spila leik í gær, sem við náðum að klúðra
í jafntefli eða reyndar má segja að við hefðum náð þessu jafntefli,
vorum 16-9 yfir í hálfleik og í byrjun seinni hálfleiks misstum við
þetta niður og jöfnuðum leikinn 2 sekúndum fyrir lok leiks. Þannig
að byrjun á þessu tímabili má segja sé ekki alveg eins og við
ætluðum okkur en við erum með 1 stig eftir þrjá leiki, en svo er
derby leikur á laugardaginn sem að verður víst stríð eins og þeir
liðsfélagar mínir vilja meina en við verðum bara að vinna þýðir
ekkert annað. Svo eigum við bikarleik á miðvikudaginn í næstu viku
hérna á heimavelli og eru þá Heiðmar Fel og félagar á leiðinni þá,
en þeir eru á mikilli siglingu þessa dagana og unnu til að mynda
síðasta leik með 20 mörkum þannig að það verður mjög erfiður
leikur. En ég kem að því seinna.
Svo vil ég koma því á framfæri fyrir þá sem lesa þessa síðu og
eru staddir á Akureyri þá á ástkær móðir mín afmæli á sunnudaginn,
og ætla ég hér með að bjóða ykkur sem að lesa þetta í kaffi og
kökur í Stekkjargerði 1 á sunnudaginn kemur milli 14 og 16, allar
gjafir vel þegnar       
Hef þetta ekki lengra í bili,
Kveðja Einar Logi
»
17.09.2006 18:23:48 / einarlogi
Já loksins gat ég horft á enska boltann eftir mjög langa bið, en
ég hef lítið sem ekkert séð enska boltann frá því að ég flutti
hingað út til Þýskalands. En ég sem sagt fékk mér premiere um
daginn og meðal annars sem sýnt er þar er eimmitt enski boltinn
ásamt miklu fleiru, til dæmis allir nýjustu þættirnir og
bíómyndirnar, en alla vega þá höfum við Anna bara legið upp í sófa
í dag og horft á enska boltann, fyrst Chelsea - Liverpool sem fór
1-0 fyrir Chelsea og svo aðalleikurinn Man. Utd - Arsenal, og að
sjálfsögðu fóru mínir menn í Arsenal með sigur af hólmi 1-0 eftir
að hafa reyndar kúðrað víti en þeir unnu allavega sem að ég var
mjög ánægður með. Greinilega mikil uppbygging í gangi hjá Arsenal
núna þar sem mikið var af ungum leikmönnum í liðinu í dag og þegar
við sáum byrjunarlið liðanna í dag þá voru einhverjir 4 eða 5
leikmenn í Arsenal liðinu sem að við þekktum ekkert og vissum ekki
einu sinni hverjir væru. Svo að við tökum nú einn fyrir af þessu
ungu gæjum hjá Arsenal, þá er þessi Adebayor sem setti sigurmarkið
í dag, alveg eins og Kanu sem eitt sinn var í Arsenal. Svipuð
greiðsla, svipaður hlaupastíll, sama númer, sami litarháttur og
komumst við Anna að því að þetta hlýtur bara að vera óskilgetinn
sonur Kanu, það getur bara ekki annað verið, eða hvað finnst ykkur
hinum????
Annars er bara gott að frétta af okkur þremur, ég og Anna erum
núna búinn að vera teikna upp á veggi í íbúðinni þar sem á að bora,
erum að fara bora upp matarborðið, hillurnar, speglana og svo á
morgun kemur hillan og kommóðan úr IKEA en við keyptum okkur það í
síðustu viku og þar sem að það komst ekki í stóra Citroen C1 bílinn
okkar þá létum við senda það til okkar og er það sem sagt að koma á
morgun, þannig að nóg verður að gera á morgun hjá okkur við að bora
og setja saman hilluna og kommóðuna. Komum betur inná þetta seinna
hvernig þetta allt saman gekk og jafnvel koma myndir með þá af öllu
sem við erum að fara brasa á morgun.
En aðeins af leiknum okkar í gær, vorum að spila við Stralsund á
útivelli, ekki nema 7 tíma rútuferð takk fyrir. En við töpuðum
39-30 í gær eftir að hafa spilað mjög góðan fyrri hálfleik en
svo hrundi leikur okkar í seinnihálfleik og situm við á botninum í
deildinni sem er eitthvað sem að við ætluðum okkur ekki að vera
þannig að við verðum að rífa okkur upp og fara spila vel í 60
mínútur.
Ætla ekki að hafa þetta lengra í bili, bið að heilsa
Einar Logi
»
14.09.2006 14:23:17 / einarlogi
Jæja það er nú kannski löngu kominn tími á nýtt blogg, en það
hefur mikið verið að gerast undanfarna daga, og er Anna búin að
segja frá því mesta á sínu bloggi þannig að ég ætla ekkert að vera
endurtaka það hérna. Ætla bara rétt að henda inn smá bloggi svo að
þið haldið nú ekki að ég sé búinn að gefast upp 
En við vorum að spila fyrsta leik í deildinni í gær og var hann
hérna á heimavelli, og í hreint alveg magnaðri stemmingu, mjög
langt síðan að ég hef spilað í svona stemmingu en það voru um 1500
manns á leiknum og létu flestir ef ekki allir vel í sér heyra. En
það var ekki nóg þar sem að við vorum ekki alveg með á nótunum í
vörninni og vorum ekki að nýta vítin sem að við fengum og endaði
með því að við töpuðum með 2 mörkum, sem var ekki alveg sú byrjun
sem að við óskuðum okkur en við verðum bara að rífa okkur upp fyrir
næsta leik sem verður núna á laugardaginn.
Annars er Jón bróðir að fara heim á morgun, hann er búinn að
vera hjá okkur núna í næstum því tvær vikur og var alveg hreint
frábært að fá hann og Helga rambó sem reyndar stoppaði bara í viku.
Þannig að við verðum brátt bara tvö hérna í kotinu, og verður
þannig bara held ég fram að jólum þegar að við ætlum að kíkja heim
á klakann . Ekki nema einhver vilji koma í heimsókn áður þá er
það guð velkomið, alltaf gaman að fá gesti og vona ég bara að
einhver eða einhverjir ákveði að kíkja á okkur hérna.
En læt þetta nægja í bili,
Einar Logi
»
02.09.2006 10:53:43 / einarlogi
Mikið er nú gaman að hafa tívolí svona beint fyrir utan gluggann
hjá sér, get nú ekki sagt annað. En eins og ég sagði í fyrri færslu
að þá er sem sagt tívolí hér í bænum um helgina og er bærinn
undirlagður af hinum ýmsu tívolítækjum. Fyrir utan hjá mér er
einhverskonar hringekja og svo klessubílar ásamt fleiri smærri
tækjum, þannig að ég heyri öll öskrin í krökkunum sem eru í
tækjunum eins og þau stæðu við hliðina á mér og ég tala nú ekki um
að tónlistin er á fullu frá miðjum degi og fram að miðnætti líka,
þannig að þessa helgina bý ég á diskóteki. Ég æltaði að kíkja á
sjónvarpið aðeins í gær en nei það gekk ekki því ég heyrði ekki
mikið þó svo að sjónvarpið væri stillt í hæðsta mögulega styrk, þar
sem tónlistin að utan var full há. Ég er greinilega ekki með
jafngóðar græjur og þessir tívolíkallar.
En var annars að koma af liðskynningu þar sem allir
styrktaraðilarnir voru og hörðustu áhangendurnir, var mjög
hressandi að þurfa tjá sig þarna. Svo er fyrsti alvöruleikur á
morgun hjá okkur en þá erum við að fara spila við TSG Emmerthal í
bikarnum en þeir eru í 3. eða 4. deild er ekki alveg viss, þannig
að við ættum að vinna en við megum nú samt ekki vanmeta þá því þá
gæti illa farið, en við ætlum okkur að sjálfsögðu áfram.
Svo er ég loksins búinn að finna mér háskóla þar sem ég get
verið í fjarnámi, en ég fann háskóla sem að er í Bretlandi og hægt
að læra allt mögulegt þar og meðal annars Þýsku sem ég ætla að fara
í, langar að kunna þýskuna enn betur en ég kann nú þegar. En námið
byrjar nú ekki fyrr en í febrúar þannig að enn er góður tími í að
ég byrji að læra aftur.
Jæja ætla ekki að hafa þetta lengra í bili, bið að heilsa
Einar Logi
»
30.08.2006 13:22:49 / einarlogi
Jæja ég ákvað að koma með smá blogg, þar sem lítið er annað að
gera núna hjá mér eins og er.
En strax í byrjun undirbúningstímabilsins hjá okkur komu á
æfingu hjá okkur tveir kínverskir læknar og voru að útskýra fyrir
okkur einhverjar kínverskar lækningar sem eru kallaðar Qi Kong, sem
eiga meðal annars að gefa manni orku og hjálpa til við að verða
heill heilsu eftir meiðsli og annað slíkt, ég var nú ekkert alveg
að trúa þessu fyrst sko að þeir gætu bara gefið okkur einhverja
orku og þess háttar. Þar sem þeir eru miklir aðdáendur
Emsdetten og mæta nánast á hvern heimaleik hjá okkur, þá
buðu þeir okkur að koma til sín og kynnast þessu betur
og við slógum til strákarnir í liðinu og skelltum okkur til
þeirra ásamt þjálfaranum okkar. Þegar við mætum þarna til
þeirra er okkur vísað inn í lítin sal og þar vorum við látnir
standa með augun lokuð í algjörri slökun, þá byrjar annar
þessara lækna að brasa eitthvað bakvið okkur og áður en maður
vissi af vorum við allir farnir að rugga til fram og aftur einsog
einhver væri að toga í okkur, já ég veit að þetta hljómar
fáránlega en þetta er alveg dagssatt, og eftir þetta ef ég á að
segja alveg eins og er þá leið mér ekkert smá vel. Svo næsta
mánudag eigum við að mæta aftur og þá ætla þeir að kenna okkur
einhverjar æfingar sem að við getum gert sjálfir heima við til að
auka orkuflæðið í líkamanum og minnka verki hér og þar í líkamanum
ef einhverjir eru. Ég verð nú að segja eins og er að mér finnst
þetta hljóma hálf kjánalega en ég ætla að gefa þessu séns og sjá
hvort þetta virkar eitthvað á mig, til dæmis á hnéin á mér sem hafa
ekki verið í sínu besta formi undanfarið. Kem svo með fréttir af
þessu seinna.
En um helgina er hér í bænum svokallað Kirmes en það er
einhverskonar tívolí, og allt gott og blessað um það að segja nema
hvað að fyrir framan blokkina sem að ég bý í er svo hálfgert torg
þar sem markaðir eru haldnir á hverjum miðviku- og laugardegi en
núna um helgina eru aðal tívolí tækin hérna beint fyrir framan hjá
mér og er verið í þessum skrifuðum orðum hjá mér að setja
þetta allt saman upp og byrjuðu þeir kl 7 í morgun með tilheyrandi
látum og ég þar með vaknaði klukkan 7 í morgun, mjög gaman það,
reyndar er það líka svoleiðis á miðviku- og laugardagsmorgnum þegar
markaðurinn er í gangi þannig ekki er mikið um það að ég fái að
sofa út á þessum dögum. En annars verður örugglega fínt að geta
bara skellt sér út á svalir og fylgst með þessu öllu saman um
helgina.
En svo líka er fyrsti leikur hjá okkur í Emsdetten á
sunnudaginn, erum að fara spila í bikarnum við eitthvað 3.
deildarlið, og svo kemur Anna mín, Jón bróðir og Helgi líka á
sunnudaginn, og þar sem ég verð að keppa þegar að þau koma þá þarf
ég að finna út úr því hvað ég á að gera við húslyklana svo að þau
komist nú inn, en það hlytur að reddast á endanum.
Jæja læt þetta nægja í bili, bið að heilsa í bili.
Einar Logi
»
27.08.2006 19:56:25 / einarlogi
Jæja, það er nú löngu komin tími á að ég skrifi eitthvað nýtt
hérna inn, en þar sem að ég hef ekki verið í neinu netsambandi
síðan í sumar þegar að ég var heima á Íslandi þá er voðalega erfitt
að koma einhverju hérna inn og þó svo að ég sé löngu kominn út
aftur þá tekur ekki nema mánuð á fá nettengingu hérna í Þýskalandi.
En alla vega er nóg búið að gerast síðan ég skrifaði síðast en það
sem hæst ber af því er það að við Anna erum flutt og ég kominn í
nýtt lið sem að heitir TV Emsdetten og kemur frá samnefndum bæ hér
í norður þýskalandi, já ég er sem sagt fluttur "norður yfir heiðar"
aftur . Flutningarnir hingað gengu bara fínt og hef ég verið að
dunda mér við að taka dót uppúr kössum síðustu vikur og er það allt
saman búið að megninu til.
Fyrr í sumar fórum við Anna í brúðkaup hjá vinafólki okkar hér í
Þýskalandi, en Markus sem að ég var að spila með hjá Friesenheim og
Sarah konan hans voru að gifta sig. Brúðkaupið var hin mesta
skemmtun og var það líka öðruvísi en maður er vanur frá Íslandi,
eða alla vega hef ég ekki farið í svona brúðkaup áður. Við sem sagt
mættum í svona lítið félagsheimili sem lá við vatn en brúðhjónin
voru búin að leigja það fyrir veisluna, og þegar að við komum á
staðinn þá voru brúðhjónin þar að taka á móti gestum og stuttu
seinna kom prestur og gaf þau saman, sem sagt engin kirkja, sem að
mér fannst svolítið skrítið og óvenjulegt. Svo eftir það var matur
og kökur á boðstólnum og svo kom hljómsveit og spilaði fyrir dansi
fram á nótt. Mjög gott og skemmtilegt brúðkaup þarna á ferð. Svo
sagði ég brúðhjónunum að þau ættu bara að skella sér í
brúðkaupsferð til Íslands næsta sumar og er ég alveg viss um að þau
láti slag standa og kíki heim á klaka 
Eftir brúðkaupið fórum við svo til Mannheim og Ludwigshafen og
vorum þar í viku, þá fórum við hingað uppeftir og fluttum dótið
okkar inn í íbúð og drifum okkur svo til Essen í heimsókn til Dóra
og Hönnu áður en Anna flaug aftur heim til Íslands, þar sem hún er
ennþá en kemur eftir vikur ásamt Jóni "litla" bróður og Helga. En
þeir ætla að fylgja Önnu út og vera í smá tíma hérna úti hjá
okkur. Það verður fínt að fá þá hingað út, því þeir fá að hjálpa
okkur að bora eldhúsborðið á vegginn og ef það verður eins og
síðast þegar það var sett upp þá verður það mikið vesen , maður
verður að láta þá vinna fyrir gistingunni ekki
satt????? 
En annars eftir að Anna fór aftur heim, þá hef ég bara verið að
æfa á fullu og spila æfingaleiki, og get ég fullyrt það með góðri
samvisku að ég hef aldrei æft eins mikið á einu
undirbúiningstímabili og núna, sem er ekkert nema gott því þá ætti
maður að vera í fínasta formi En ég nenni nú ekki að vera blaðra
meira um það hvað ég sé búinn að vera æfa mikið. Ég nefnilega
lofaði sumum að skrifa minna um handboltann og meira um það sem ég
er að bralla svona dagsdaglega (taki þeir þetta til sín sem vilja)
og ætla ég að reyna að gera það, svo þið fáið nú ekki alveg ógeð á
að lesa síðuna hjá mér, kannski hefur þetta líka það í för með sér
að fleiri kvitti hérna inná síðuna og komi með hvatningu til mín
eða eitthvað þess háttar. En það væri fínt að fá smá komment frá
einhverjum af þeim sem eru að lesa síðuna hjá mér.
En jæja það er best að fara hætta þessu, nenni ekki að skrifa
meira inn í bili, kom með nýjan pistil sem fyrst en þangað til
hafið það gott.
Bið að heilsa í bili,
Einar Logi
»
25.08.2006 15:16:23 / einarlogi
Jæja er loksins komin með nettengingu, tók ekki nema mánuð að fá
hana, en er bara að láta vita af mér, er að hugsa um að skrifa
pistil inn hérna fljótlega fyrir þá sem hafa áhuga.
Einar Logi
»
26.05.2006 15:15:45 / einarlogi
Er mættur á klakann,
er með gamla númerið, 8683963
Kveðja Einar Logi
»
29.04.2006 21:31:48 / einarlogi
Ætla að koma með smá pistil frá leiknum í kvöld, en er nú samt
varla að nenna að skrifa lengur hérna inná þetta blessaða blogg, er
að hugsa um að fara hætta þessu það lesa þetta hvort sem er svo
fáir. En jæja að leiknum en við vorum að spila derby leik í kvöld á
útivelli við Leutershausen og í mjög stuttu máli unnum við þann
leik auðveldlega með 10 mörkum og vorum allan leikinn með örugga
forustu, ég spilaði allan tíman í sókn og stóð mig bara mjög vel og
setti 3 góð mörk en reyndar átti ég 3 skot til viðbótar en þau
smullu öll í stönginni en opnaði líka vel fyrir hina strákana í
liðinu, þannig að ég er bara nokkuð sáttur með minn leik.
Annars fer vonandi að skýrast á næstu dögum hvar ég spila á
næsta ári, er með nokkur lið í pokahorninu og er búinn að fara
skoða aðstæður hjá einu liði og fer mjög líklega núna í vikunni að
skoða aðstæður hjá öðru líði, þannig að þetta ætti að fara
koma í ljós á næstu dögum eins og ég sagði áðan.
Annars vil ég bara óska K.A. mönnum til hamingju með sigurinn á
Selfossi í dag og þar með að tryggja veru sína meðal þeirra bestu á
næsta ári.
Hef þetta ekki lengra í bili, með kveðju frá Þýskalandi
Einar Logi
»
24.04.2006 13:11:02 / einarlogi
Já það er sko ekki hægt að segja annað en það að við séum að
spila illa þessa dagana, alla vega á heimavelli, búnir að skíttapa
síðustu tveimur heimaleikjum. En við vorum að spila við Solingen í
gær og í sem stystu máli þá töpuðum við þeim leik með 6 mörkum
23-29 eftir að hafa verið 8-16 undir í hálfleik. Ég spilaði allan
leikinn í horninu þar sem að Lev er meiddur og gat ekki spilað, ég
setti reyndar bara eitt mark í leiknum en fiskaði 4 vítaköst, en
var samt ekki alveg sáttur á köflum með liðsfélagana þar sem ég
fékk ekki boltann þegar ég var alveg dauðafrír, en þýðir ekkert að
væla það, vona bara að þeir sjái mig næst annars náði ég ekki að
fara einu sinni fram í hraðaupphlaup einn á móti markmanni þar sem
vörnin hjá okkur var gríðarlega slök og markvarslan eftir því og
því skoruðu leikmenn solingen nánast úr öllum sínum skotum.
En eftir leik vorum við leikmenn látnir afgreiða bjór og annað
meðlæti sem afsökunarbeiðni fyrir að hafa tapað með 10 mörkum fyrir
Obernburg í heimaleiknum á undan leiknum við Solingen í gær. Það er
svo spurning hvað við gerum næst þar sem að þessi leikur í gær var
bara ekkert skárri. En alla vega fannst mér þetta alveg fáránlegt
að við þyrftum að gera þetta í gær, því að af öllum þessum 500-600
manns sem mæta að meðaltali á leik hjá okkur eru svo í mesta lagi
30 manns sem styðja okkur eitthvað á leikjum, hinir sitja þarna og
drekka sinn bjór og borða sína bratwürst og eru lítið sem
ekkert að fylgjast með leiknum held ég og meiri hlutinn af
þessum áhorfendum eru 60 ára og eldri. Þannig að stemmingin er oft
meiri á Bridgemóti eða Skákmóti. Og auk þess er það oft þegar
við erum að spila á heimavelli að það heyrist meira í þeim
örfáu áhorfendum sem fylgja gestaliðinu og þar af leiðandi er
bara eins og við séum að spila á útivelli alla miða við
hvernig stemmingin er, til að mynda í gær á leiknum þá
komu 3 fullar rútur af fólki með Solingen, sem er reyndar mjög
mikið miðað við að Solingen var að spila á útivelli, og þá var ekki
að spyrja að því hvoru megin stemmingin var, það heyrðist ekki í
okkar áhorfendum. En þetta var mín skoðun á þessum blessuðu
áhorfendum okkar og fannst mér við ekkert eiga það skilið að þurfa
að fara afgreiða bjór og meðlæti eftir leik, þó svo að við hefðum
spilað illa. Ég get svo sem lítið gert í þessu, ég ræð engu hérna
þannig að ég fylgi bara straumnum.
Ég skutlaði Önnu svo á flugvöllinn í morgun, og reikna ég með
því síðan að koma heim í lok maí, annars höfum við Anna verið að
pakka niður núna í síðustu viku og er allt að verða komið ofan í
kassa og ég á bara eftir að setja mín föt ofan í kassa og svo
sjónvarpið og dvd, þannig að ég ætti nú að geta reddað því og þá
erum við klár að flytja, hvert svo sem það verður, það leiðir
tíminn í ljós bara. Er kominn með eitt tilboð en vonast til þess að
fá eitthvað meira af tilboðum hérna úti, þó það væri nú ekki nema 1
eða 2, ef ekki þá gæti maður bara verið á leiðinni heim á klakann,
en það kemur allt í ljós á næstu dögum vona ég.
Læt þetta nægja í bili, kveðja frá Þýskalandi
Einar Logi
»
16.04.2006 10:38:10 / einarlogi
Vorum að spila í gær við Dormagen á útivelli, en þeir eru í 2.
sæti deildarinnar og með mjög gott lið. Leikurinn var mjög jafn og
spennandi allan fyrri hálfleikinn en við vorum 1 marki undir í
hálfleik, svo í seinni hálfleik misstum við þá 3 mörkum framúr
okkur og eftir það hélst sá munur þangað til í lokin að leikurinn
endaði með 5 marka tapi hjá okkur 31-26. Ég fékk að spila síðustu
15 mínúturnar í sókn og stóð mig bara ágætlega að mér fannst, alla
vega var ég sáttur með minn leik, en ég náði að setja tvö góð mörk.
Næsti leikur er svo á sunnudaginn við Solingen hérna heima.
Dóri, Hanna og krakkarnir mættu á leikinn og náði ég að spjalla
við þau aðeins eftir leik, og voru þau bara mjög hress. Annars var
Óli að fara áðan, við skutluðum honum á lestarstöðina áðan. Það var
alveg magnað að fá hann og var þetta snilldartími hjá okkur, svo
fer Baldvin seinna í dag.
Annars hef ég ekki mikið meira að segja í bili, þannig að ég læt
þetta bara nægja núna.
Kveðja frá Þýskalandi
Einar Logi
»
13.04.2006 15:14:54 / einarlogi
Já aldeilis slæmt tap í gær á heimavelli, en við töpuðum fyrir
Obernburg í gær með 10 mörkum 22-32, staðan í hálfleik var 11-12
eftir að við komumst í 5-0. Spiluðum vel í fyrrihálfleik en svo
hrundi þetta bara í seinni hálfleik. Ég fékk að spila smá í horninu
og setti 1 mark. Nenni ekki að skrifa meira frá þessum leik þar sem
aðvið skíttöpuðum.
Baldvin að koma á eftir, og fullt hús bara núna hjá okkur þar
sem að óli er hérna fyrir hjá okkur.
En læt þetta nægja í bili, leikur á laugardaginn aftur þá við
Dormagen á útivelli.
Kveðja frá Þýskalandi
Einar Logi
»
10.04.2006 23:55:20 / einarlogi
Sælt veri fólkið, á að vera löngu búinn að pikka inn pistil
hérna, en hvað um það. Við vorum sem sagt að spila við Willstätt á
laugardaginn síðasta og í sem allra stystu máli þá unnum við þann
leik 28-22 eftir að staðan hafi verið jöfn í hálfleik 12-12. Viti
menn kallinn var bara í byrjunarliðinu þar sem gæinn sem spilar
líka í hægri skyttunni var meiddur og kallinn fékk að byrja inná,
en notaði það tækifæri alls ekki nógu vel og var kominn á bekkinn
eftir 20 mínútna leik, en náði að skora eitt mark á þessum mínútum.
Staðráðinn í að spila betur næst þegar að ég fæ að spila, vonandi á
miðvikudaginn en þá erum við að spila Obernburg.
Annars eru Anna og Óli í heimsókn hjá mér og ekkert nema gott um
það að segja að fá þau, þau komu færandi hendi með hálfa ferðatösku
af íslensku góðgæti En annars er voða lítið að frétta af mínum
málum, en er búinn að heyra samt af nokkrum liðum sem hafa áhuga,
en tíminn einn leiðir í ljós hvað verður í þessum málum, en ef þið
vitið um lið þá bara endilega að láta mig vita.
Hef þetta ekki lengra í bili, er farinn að horfa á nýja
sjónvarpið mitt með gestunum 
Kveðja frá Þýskalandi
Einar Logi
»
02.04.2006 22:02:18 / einarlogi
Jæja best að koma með smá pistil frá leiknum áðan, en við vorum
að spila á útivelli við Bietigheim en þeir voru fyrir leikinn í
fallsæti og við í 7. sæti, en leikurinn var mjög jafn nánast allan
tímann og réðu heimamenn algjörlega ferðinni allan fyrri
hálfleikinn og megnið af þeim seinni og voru alltaf með
yfirhöndina. En stuttu fyrir leikslok náðum við að jafna og komast
yfir og síðustu 10 mínúturnar var jafnt á öllum tölum, en svo 1
mínútu fyrir leikslok fáum við boltann í stöðunni 26-25 fyrir okkur
og við förum í sókn og spilum í smá tíma og fáum merki um leiktöf á
okkur þegar um 25 sek. voru eftir og þá náum við góðri línusendingu
og skorum en þá hafði þjálfarinn hjá okkur beðið um leikhlé í þann
mund sem okkar maður var að fara skjóta þannig að markið var dæmt
af og við fengum leikhlé og staðan ennþá 26-25 fyrir okkur, eftir
leikhlé þurftum við að skjóta sem fyrst þar sem að hendin var komin
upp og missum við boltan þegar um 15 sek. eru eftir og Bietigheim
bruna upp völlinn en við náum að brjóta á þeim en fengum reyndar 2
mínútur fyrir þannig að síðustu sekúndurnar í leiknum vorum við
einum færri og alveg í blálokinn náum við að brjóta á þeim og tímur
rennur út og aðeins aukakastið eftir, sem var í hægri skyttunni,
við stillum uppvarnarvegg og hægri skytta þeirra Bietigheim manna
kringlar uppá sig og skýtur boltanum framhjá varnarveggnum í
markmanninn okkar og þaðan í netið, sem sagt mjög svekkjandi
jafntefli, eftir að við höfðum verið að berjast allan tímann að ná
forystunni í leiknum og fá svo svona mark á sig þegar leiktíminn
var búinn. En svona er boltinn.
Annars fékk ég að spila alveg 3 eða 4 sóknir og náði að spila
eina vörn líka, það var allt sem ég fékk að taka þátt í þessum
leik. En annars er voða lítið að frétta af mínum málum,
umboðsmaðurinn minn er að leita núna á fullu af liði fyrir mig, en
ég hef sjálfur líka fengið nokkur símtöl og verið að spurja hvað ég
ætli að gera næsta vetur og viðkomandi sé að lýsa yfir áhuga að fá
mig fyrir næsta tímabil, sem er bara gott, alla vega veit ég þá að
það séu einhver lið sem vilja mig 
En læt þetta nægja í bili,
Kveðja frá Þýskalandi
Einar Logi
»
Síður: 1 2 3 ... 6
|
|